Erlent

Lengri frestur á stafræn vegabréf

Bandarísk yfirvöld hafa ákveðið að gefa borgurum 27 landa sem hafa mátt ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar, þar á meðal Íslands, eins árs lengri frest til að verða sér úti um vegabréf sem uppfylla nýjustu öryggiskröfur. Til hafði staðið að frá 26. október á þessu ári yrðu allir sem ferðuðust áritunarlaust vestur um haf að hafa slíkt tölvulesanlegt vegabréf, sem innihéldi lífkenni. Í stað þess hafa löndin 27 heitið að innleiða hina nýju vegabréfatækni innan hins framlengda frests. Michael Chertoff, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, sagði á innanríkisráðherrafundi G8-hópsins í Sheffield í Englandi í gær, að stjórnvöld í Bandaríkjunum og löndunum 27 muni vinna saman að því að tryggja að nýja stafræna vegabréfatæknin komist til framkvæmda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×