Erlent

Gagnrýna ESB fyrir Hamas-tengsl

Ísraelsk stjórnvöld sögðust í gær hafa lagt inn formleg mótmæli hjá Evrópusambandinu gegn auknum samskiptum þeirra við hin herskáu Hamas-samtök Palestínumanna. Talsmenn Hamas staðfestu að tengsl við erindreka ESB færust í aukana. Elena Peresso, talsmaður utanríkismálastjóra ESB, sagði að sambandið hefði ekki tekið ákvörðun um neina stefnubreytingu gagnvart Hamas, en samtökin hafa nýlega styrkt stöðu sína í palestínskum stjórnmálum meðal annars með góðri útkomu í sveitarstjórnakosningum. Hamas er enn á lista yfir hryðjuverkasamtök bæði hjá ESB og Bandaríkjastjórn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×