Svartsýni á árangur 16. júní 2005 00:01
Við upphaf tveggja daga leiðtogafundar Evrópusambandsins í Brussel í gær kallaði Jacques Chirac Frakklandsforseti eftir því að efnt verði til sérstaks leiðtogafundar aðildarríkjanna 25 um framtíð sambandsins. Chirac sagði að forystumenn ESB-landanna yrðu að leggja það niður fyrir sér hvernig fara mætti að því að "brúa þá gjá sem annars er hætt við að víkki enn milli Evrópu[sambandsins] og borgara þess". Þessi gjá varð augsýnileg er franskir og hollenskir kjósendur felldu stjórnarskrársáttmála ESB í þjóðaratkvæðagreiðslum, þvert á vilja ráðamanna. "Þetta er einn erfiðasti leiðtogafundur sem við höfum nokkru sinni haldið," sagði Jean Asselborn, utanríkisráðherra Lúxemborgar, sem er nú að ljúka formennskumisseri sínu í sambandinu. Við upphaf fundarins var svartsýni ríkjandi um að á honum tækist að ná samstöðu um hvað gera skyldi til að komast yfir kreppuna sem synjanirnar tvær hafa orsakað. Annað stórt deilumál varpaði líka skugga á. "Ég held að það takist ekki samkomulag um fjárlögin; ágreiningurinn er of mikill," sagði sænski forsætisráðherrann, Göran Persson, er hann mætti til fundarins. Stefnt hafði verið að því að á fundinum myndu leiðtogarnir samþykkja fjárlagaramma sambandsins fyrir tímabilið 2007-2013. En í drögunum að því samkomulagi var gert ráð fyrir því að endurgreiðslur sem Bretar hafa fengið úr sameiginlegum sjóðum sambandsins yrðu afnumdar í áföngum, sem liður í allsherjarendurskoðun á fyrirkomulagi fjármögnunar hins stækkaða Evrópusambands. Þessu hafnar breska stjórnin alfarið. Utanríkisráðherrann Jack Straw ítrekaði við komuna til Brussel að ekki kæmi til greina af Breta hálfu að fallast á þau drög að málamiðlun sem fyrir lægju. Ef svo skyldi fara að fundinum ljúki án áþreifanlegs árangurs í að leysa þessar deilur myndi það ýta enn undir þá tilfinningu meðal íbúa sambandsins, og ekki síður í löndum utan þess, að sambandið sé orðið áttavillt og óvissa viðvarandi um framtíðarstefnu þess.
Erlent Fréttir Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira