Erlent

Vildi fresta staðfestingarferli

Jean Claude Jucker, forsætisráðherra Lúxemborgar, lagði til að staðfestingarferli stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins yrði lagt til hliðar í níu mánuði til eins árs á meðan leiðtogar aðildarríkjanna ákvæðu næstu skref í kjölfar þess að Frakkar og Hollendingar felldu stjórnarskrána. Tillöguna bar hann upp á fundi leiðtoga íhaldsflokka innan Evrópusambandsins í Brussel í dag og þrátt fyrir að Joes Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hefði ljáð honum stuðning sinn fékk tillagan ekki náð fyrir augum íhaldsleiðtoganna. Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna 25 hittast einnig í dag og ræða þá stöðu sem upp er komin í kjölfar þess að Frakkar og Hollendingar höfnuðu sáttmálanum en þeir ræða einnig um fjármál Evrópusambandsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×