Engin von um að Schiavo næði sér 16. júní 2005 00:01
Engin von var til þess að Terri Schiavo næði sér. Krufning leiddi þetta í ljós en ekki tókst að finna ástæðu þess að hún féll í dá fyrir fimmtán árum síðan. Heilinn í Schiavo var svo alvarlega skaddaður að hún hefði aldrei náð sér hefði hún lifað. Þetta er meginniðurstaða krufningar á henni en hún lést fyrir nokkrum vikum eftir að hafa hvorki fengið vott né þurrt í nærri tvær vikur. Greint var frá niðurstöðum rannsókna hóps vísindamanna í gær og komust þeir meðal annars að því að heilinn í Schiavo var helmingi minni en í venjulegu fullorðnu fólki. Læknar telja því algjörlega útilokað að hún hefði mögulega getað náð bata. Þá kom einnig í ljós að Schiavo var blind síðustu ár ævi sinnar. Eiginmaður Schiavo, Michael, telur þetta sýna að hann hafi frá upphafi haft rétt fyrir sér, en foreldrar Terri eru því ósammála. Talsmaður þeirra bendir á að vísindamennirnir hafi ekki getað komist að ástæðu þess að hún féll í dá fyrir fimmtán árum en Michael hefur haldið því fram að orsökin sé átröskunarsjúkdómur sem leiddi til ofþornunar. Læknar telja það þó ekki sannfærandi skýringu. Engin ummerki fundust heldur um að hún hefði fengið hjartaáfall og ljóst er að henni var ekki gefið morfín síðustu dagana sem hún þornaði upp á sjúkrabeðinu í vor. Fjölskylda Terri hefur lengi grunað Michael Schiavo um að bera með einum eða öðrum hætti ábyrgð á því að Terri féll í dá. Niðurstöður krufningarinnar vörpuðu engu ljósi á það og ekki tókst að svara ýmsum lykilspurningum í málinu og því hætt við að áfram verði deilt um það.
Erlent Fréttir Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira