Erlent

Kærður fyrir æluárás

Bandarískur menntaskólanemi, sem kastaði upp á spænskukennarann sinn, hefur nú verið ákærður fyrir líkamsárás. Neminn bar því við að uppköstin hefðu verið slys, orsökuð af prófstreitu. En saksóknarar segja að vitni beri að drengurinn hafi vísvitandi ælt á kennarann, að því er greint er frá á fréttavef BBC. "Ég tel að bæði skólayfirvöld og saksóknaraembættið séu að senda ótvíræð skilaboð um að svona hegðun verði ekki liðin," tjáði kennarinn, David Young, AP-fréttastofunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×