Erlent

Nú er hún Snorrabúð stekkur

Þau tímamót urðu í fjölmiðlasögu Bretlands í gær, að síðasta fjölmiðlafyrirtækið flutti frá Fleet Street sem í þrjúhundruð ár var aðsetur virtustu dagblaðanna sem gefin voru út í bresku höfuðborginni. Það var Reuters-fréttastofan sem flutti höfuðstöðvar sínar endanlega frá Fleet Street í gær, en dagblöðin voru öll farin þaðan áður. Þau starfa nú í úthverfunum, í byggingum sem eru sérstaklega byggð yfir starfsemina. "Fleet Street, sem var landfræðileg miðja bresku pressunnar, er nú sem yfirgefið þorp, hlaðið minningum á hverju horni," sagði David Meara í messuræðu fyrir fullu húsi í St.Bride's-kirkjunni, sem hefð er fyrir að sé kirkja blaðamanna í London.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×