Erlent

Ólæknandi heilaskaði staðfestur

Krufning á Terri Schiavo hefur leitt í ljós að heilaskaði hennar var það mikill að bati var útilokaður. Niðurstöður krufningarinnar voru birtar í gær, tveimur mánuðum eftir að Schiavo dó. Þar með var staðfest að eiginmaður Schiavo hafði rétt fyrir sér en vonir um að lækning væri hugsanleg, sem foreldrarnir og aðrir héldu í og vildu því ekki að hún yrði aftengd vélunum sem höfðu haldið henni á lífi í 15 ár, reyndust ekki á rökum reistar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×