Erlent

OPEC eykur framleiðsluna

Ráðherrar OPEC, samtaka olíuútflutningsríkja, ákváðu í gær að auka framleiðslukvóta hráolíu um hálfa milljón fata á dag, með það fyrir augum að lækka heimsmarkaðsverð. Neikvæðra afleiðinga hás olíuverðs hefur í auknum mæli farið að gæta í alþjóðahagkerfinu að undanförnu. Í tilkynningu frá samtökunum segir að ákveðið hafi verið að auka framleiðslukvótann frá og með 1. júlí úr 27,5 milljónum í 28 milljónir fata á dag. Ennfremur var ákveðið að framleiðslukvótinn verði aukinn um hálfa milljón fata til viðbótar síðar á árinu, lækki heimsmarkaðsverðið ekki á þriðja ársfjórðungi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×