Erlent

Sextán handteknir á Spáni

Spænska lögreglan upplýsti í gær að hún hefði handtekið sextán menn grunaða um tengsl við hryðjuverkahópa íslamskra öfgamanna. Fimm hinna handteknu eru grunaðir um að hafa verið viðriðnir lestarsprengjutilræðin í Madríd í mars 2004, sem bönuðu hátt í 200 manns. Hinir mennirnir ellefu eru sagðir hafa tengsl við Abu Musab al-Zarqawi, jórdanska spellvirkjann sem fer fyrir uppreisn í Írak. Um 500 lögreglumenn tóku þátt í handtökuaðgerðunum, í Madríd og ýmsum öðrum borgum og bæjum Spánar, að því er innanríkisráðuneytið upplýsti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×