Klofningur sjaldan meiri í ESB 15. júní 2005 00:01
Klofningur hefur sjaldan virst vera meiri í Evrópusambandinu en nú. Djúpstæður ágreiningur um árlegar endurgreiðslur sem breski ríkissjóðurinn fær úr sameiginlegum sjóðum ESB, um rausnarlegar niðurgreiðslur til franskra bænda, óvænt ólíkar leiðir sem Frakkar og Þjóðverjar hafa reynst fara varðandi stjórnarskrársáttmála sambandsins, og veikt gengi evrunnar leggst allt á eitt um að varpa skugga á leiðtogafundinn sem hefst í Brussel í dag og setur lokapunktinn á formennskumisseri Lúxemborgar. Talað hefur verið um þennan leiðtogafund sem tækifæri til að hleypa nýju sjálfstrausti í Evrópusambandið, hálfum mánuði eftir að kjósendur í Frakklandi og Hollandi höfnuðu stjórnarskrársáttmála sambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslum og settu framhald Evrópusamvinnunnar þar með í uppnám. Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnarinnar, brýndi leiðtogana til dáða í gær. Tækist þeim ekki að leysa þann hnút sem stjórnarskrármálið er nú komið í kunni það að steypa sambandinu í "endalausa kreppu og stöðnun". Líklegast þykir þó að ekki takist neitt samkomulag um "björgun" stjórnarskrársáttmálans. Síðustu vikuna fyrir leiðtogafundinn hafa deilur um fjárlagaramma sambandsins fyrir tímabilið 2007-2013 komið mjög skýrt upp á yfirborðið. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, tjáði bæði Jacques Chirac Frakklandsforseta og Gerhard Schröder Þýskalandskanslara að hann myndi beita neitunarvaldi gegn fjárhagsáætluninni ef hreyft verði við bresku endurgreiðslunum án þess að niðurgreiðslukerfi landbúnaðarins í ESB yrði jafnframt tekið til gagngerrar endurskoðunar. Það kerfi gleypir um 40 af hundraði allra útgjalda ESB. Bretar taka við ESB-formennskunni um næstu mánaðamót.
Erlent Fréttir Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira