Erlent

Blóðugur dagur í Írak

Í það minnsta 27 fórust í tveimur sprengjuárásum í norðanverðu Írak í gær. Þá hafa fundist lík 24 manna sem bersýnilega höfðu verið teknir af lífi. Mjög öflug sprengja sprakk í vegkanti fyrir utan banka í borginni Kirkuk í gærmorgun. 22 Írakar fórust í tilræðinu og 81 særðist alvarlega. Stærstur hluti fórnarlambanna voru gamalmenni sem voru að ná í lífeyrinn sinn í bankanum og börn sem seldu ýmiss konar varning á göngubrú fyrir utan bygginguna. "Ég kom hingað til að taka út peninga og ég tók afastrákinn minn með mér," sagði sjötugur örvinglaður öldungur. Barnið slasaðist þó ekki mikið. Al Kaída í Írak lýsti tilræðinu strax á hendur sér í yfirlýsingu á netinu í gær. Nokkru sunnar í landinu, í bænum Kan'an, ók maður bíl hlöðnum sprengiefnum á eftirlitsstöð síðdegis. Fimm hermenn biðu þegar bana og tveir slösuðust. Ekki er vitað hverjir þar voru að verki. Lík 24 manna sem fundust síðla mánudags voru flutt til Bagdad í gær. Sumir mannanna höfðu verið hálshöggnir á meðan aðrir höfðu verið skotnir í höfuðið. Talið er að þessir ógæfusömu menn hafi unnið það sér eitt til sakar að hafa flutt birgðir til bandaríska hernámsliðsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×