Búast við frystingu fullgildingar 14. júní 2005 00:01
Forsætisráðherrar Svíþjóðar og Danmerkur sögðu báðir í gær að þeim þætti koma til greina að hætta við áformaðar þjóðaratkvæðagreiðslur í löndum sínum um staðfestingu stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins. Danski ríkisstjórnarleiðtoginn Anders Fogh Rasmussen sagði rétt að bíða þess hvernig tekið verði á málinu á leiðtogafundi sambandsins í Brussel nú í vikulokin, en fullgildingarferli sáttmálans komst í uppnám er bæði franskir og hollenskir kjósendur höfnuðu honum í þjóðaratkvæðagreiðslum um mánaðamótin. Öll aðildarríkin 25 þurfa að staðfesta sáttmálann til að hann geti tekið gildi. Sænski forsætisráðherrann Göran Persson tjáði ESB-nefnd sænska þingsins í gær að sér þætti koma til greina að fresta því að bera sáttmálann upp til staðfestingar í Svíþjóð. "Gefi Frakkar og Hollendingar ekki skýr skilaboð um það hvernig þeir hyggjast vinna úr höfnun sáttmálans er eins gott að við bíðum. Ég giska á að niðurstaða leiðtogafundarins verði sú að frysta fullgildingarferlið," hefur fréttavefur Dagens Nyheter eftir Persson. Fyrst eftir "nei" í Frakklandi og Hollandi hafði Persson lagt áherslu á að halda skyldi ferlinu áfram; Svíar ættu að taka eigin afstöðu til sáttmálans óháð öðrum.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Enginn aðdáandi Harry og Meghan Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira