Erlent

Stofnandi Daewoo handtekinn

Maðurinn sem stofnaði Daewoo-samsteypuna í Suður-Kóreu var handtekinn þegar hann kom aftur til heimalands síns eftir að hafa verið landflótta síðan árið 1999. Kim Woo-Choong, sem nú er sextíu og níu ára gamall, var dýrkaður í Suður-Kóreu fyrir að byggja upp stærsta fjölskyldufyrirtæki landsins. Aðdáun á honum hvarf hins vegar eins og dögg fyrir sólu þegar fyrirtækið hrundi fyrir sex árum og í ljós kom að skuldir þess voru yfir sjötíu milljarðar dollara. Kim Woo flúði þá land en er nú kominn heim aftur. Kim er orðinn heilsuveill og sagði við heimkomuna að deyjandi refur væri nú að reyna að sættast við fortíðina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×