Erlent

Írakar handteknir í Þýskalandi

Lögregluyfirvöld í Þýskalandi handtóku í morgun þrjá Íraka sem búsettir eru í Þýskalandi fyrir hugsanlega aðild að hryðjuverkasamtökunum Ansar al-Islam. Þýska lögreglan réðst í morgun til atlögu á tuttugu og fjórum stöðum þar sem grunur lék á að hryðjuverkamenn héldu sig. Ekki er þó vitað til þess að fleiri en fyrrgreindir þrír hafi verið handteknir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×