Erlent

Dræm kosningaþáttaka á Ítalíu

Ítalir kusu í gær og í fyrradag um það hvort slaka eigi á löggjöf um frjósemisaðgerðir. Kosningarnar voru hins vegar marklausar þar sem þátttaka var heldur dræm. Á fyrri degi kosninganna kusu ekki nema tæp 19 prósent þeirra sem máttu og var sú tala ekki komin upp í nema 24 prósent þegar kjörstöðum lokaði í gær. Að minnsta kosti helmingur kosningabærra manna þurfti að kjósa til að mark yrði tekið á kosningunum. Benedikt sextándi páfi lofaði biskupa sína fyrir að hafa staðið fast gegn tilslökunum og var niðurstöðunni fagnað í Páfagarði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×