Erlent

Akstur kvenna skaðar ríkið

Innanríkisráðherra Sádi-Arabíu hefur brugðist ókvæða við tillögum um að leyfa konum að aka bílum. Ráðherrann segir að það myndi skaða konungsríkið. Konur í Sádi-Arabíu njóta minni réttinda en konur í flestum öðrum arabaríkjum. Þær hafa ekki kosningarétt, verða að klæða sig samkvæmt ströngum reglum og eiga ekki að fara út fyrir hússins dyr nema í fylgd karlmanns í fjölskyldunni. Meðlimur í trúarbragðaráði landsins lagði í síðasta mánuði fram tillögu um að banni við því að konur keyrðu bíla yrði aflétt í áföngum. Trúarbragðaráðið neitaði að taka tillöguna á dagskrá og nú hefur hinn voldugi innanríkisráðherra landsins, Prins Nayef bin Abdul-Azis, tekið af öll tvímæli. Hann sagðist undrandi á að nokkrum manni hefði dottið í hug að vekja máls á þessu. Svona lagað sé ákveðið með tilliti til almannaheilla og heiðurs kvenna og hafi engan forgang. Ráðherrann vísaði óbeint til þess að í Kúveit hefur fyrsta konan fengið sæti í ríkisstjórn landsins. Hann sagði að Sádi-Arabía ætti ekki að bergmála það sem gerðist í öðrum löndum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×