Erlent

Fundu lík af 16 Írökum

Lík af 16 Írökum fundust í dag í vesturhluta Íraks en flest bendir til að fólkið hafi verið tekið af lífi. Líkin fundust á tveimur stöðum nærri bænum Qaim í Anbar-héraði og hafði höfuðið verið höggvið af tveimur þeirra. Ekki er vitað hvaðan fólkið er en ólíklegt er talið að um sé að ræða hluta af þeim 22 hermönnum sem uppreisnarmenn rændu í fyrradag þegar hermennirnir héldu frá herstöð í Qaim. Lögregla á þó eftir að skoða líkin. Al-Qaida samtökin í Írak segjast reyndar hafa rænt 36 hermönnum í fyrradag en ekki 22 eins og lögregla heldur fram en ljóst er að hermennirnir voru allir sjítar. Róstusamt hefur verið í Anbar-héraði þar sem uppreisnarmenn úr röðum súnníta hafa ítrekað látið til skarar skríða gegn her og lögreglu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×