Erlent

Plássið minnkar í flugvélum

Það er lítið pláss á almennu farrými hjá flestum flugfélögum og miðað við nýjustu breytingar er hætt við að munurinn á farþegaflutningum og hreinum gripaflutningum snarminnki á næstunni. Það er þröngt og að jafnaði ekki sérstaklega notalegt hjá þeim ferðalöngum sem ferðast á almennu farrými en hingað til hefur þó í það minnsta verið hægt að fá teppi, kodda og samloku á leiðinni. En ekki lengur, samkvæmt fréttum New York Times. Innanlandsflug vestan hafs er orðið sambærilegt við ferðalög með rútum því það er ekkert í boði annað en þröngt sætið. Flugfélagið Northwest ákvað í gær að hætta að bjóða farþegum upp á saltstangir sem kosta þó aðeins nokkrar krónur pokinn. Flestir bjóða enn upp á ókeypis drykki en ekki er talið víst að það verði gert mikið lengur. Annars staðar, eins og til dæmis í Ástralíu, hafa flugfélög fundið leið til að græða meira með því að rukka farþega um hærra fargjald fyrir að sitja í fremstu röðinni í vélinni og við neyðarútganga þar sem meira rými er fyrir fætur. Víða, eins og til dæmis hjá Icelandair, eru seldar auglýsingar á borðunum sem farþegar setja matinn sinn á - þar sem hann er enn í boði. Sérfræðingar í ferðamálum í Bandaríkjunum segja kaldhæðnina í þessu þá að lággjaldaflugfélögin bjóði nú farþegum á almennu farrými oftar en ekki meiri og betri þjónustu en hin flugfélögin. Sætarými sé síst minna, sætin jafnvel betri og koddar, teppi, drykkir og saltstangir séu þar í boði. Þessi flugfélög séu einfaldlega rekin á öðrum forsendum og skili hagnaði ólíkt hinum sem eru vel flest á hausnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×