Handtöku Mladic að vænta 10. júní 2005 00:01
Ríkisstjórn Serbíu veit um felustað Ratkos Mladic, stríðsglæpamanns og yfirmanns hers Bosníu-Serba í borgarastríðinu fyrir áratug. Handtöku er að vænta, samkvæmt fréttum serbneskra fjölmiðla. Þrýstingur á stjórnvöld í Serbíu og Bosníu hefur verið stóraukinn í von um að þau afhendi stríðsglæpamenn. Snaran um hálsinn á Radko Mladic þrengist, segir í fyrirsögn fréttatímaritsins NIN í Serbíu. Á næstunni verður gerð gangskör að því að hafa uppi á og handtaka Mladic sem ber ásamt öðrum meginábyrgð á fjöldamorðunum í Srebrenica árið 1995. Yfirvöld vita hvar hann heldur til, í einni af stærri borgum Serbíu. Aðaláherslan er lögð á að gera það án blóðsúthellinga, samkvæmt fréttum dagblaðsins Danas í Serbíu. Í frétt blaðsins segir að sögusagnir um að Mladic ætli að gefa sig fram séu hins vegar úr lausu lofti gripnar. Hingað til hafa ráðamenn í Serbíu, umbótasinnar jafnt sem þjóðernissinnar, ekki séð sér hag í að hafa upp á Mladic sem talið hefur verið víst að héldi til í Serbíu. Til að mynda hefur hann fengið atvinnuleysisbætur og aðrar bætur í Belgrad, en ættingjar hafa mætt til að taka á móti tékkanum. NATO og Evrópusambandið hafa undanfarið stóraukið pólitískan þrýsting á stjórnvöld í Serbíu og Bosníu að sjá til þess að stríðsglæpamenn verði handteknir og færðir Stríðsglæpadómstólnum í Haag og virðist nú sem sá þrýstingur skili árangri. Í Bosníu hefur verið leitað að Radovan Karadzic og er talið að hans bíði sömu örlög og Mladic, þ.e. að stjórnvöld sjái sér ekki lengur hag í að halda yfir honum hlífiskildi heldur verði hann handtekinn og framseldur.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira