Erlent

Hæstaréttardómari verður forseti

Eduardo Rodriguez, forseti Hæstarréttar Bólivíu, hefur verið skipaður forseti landsins til bráðabirgða en stefnt er að því að halda forsetakosningar í landinu innan fimm mánaða. Vonast er til að með þessu muni mótmælum í höfuðborg landsins, La Paz, ljúka en almenningur hefur krafist þess að auðlindir landsins verði þjóðnýttar. Talið er að ef forseti þingsins, Hormando Vaca Diez, hefði tekið við embættinu, sem hann hefði lagalega getað gert, hefðu mótmælin aukist og því var þessi leið frekar farin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×