Erlent

Segir árásina fyrirvaralausa

Ítalska blaðakonan Giuliana Sgrena, sem særðist í skotárás bandarískra hermanna, nýfrelsuð úr höndum mannræningja, segir að hermennirnir hafi skotið fyrirvara- og viðvörunarlaust á bílinn. Árásin hefur aukið andstöðu á Ítalíu við Íraksstríðið og spennu milli Rómar og Washington. Blaðakonan Giuliana Sgrena hafði verið í haldi mannræningja í Írak í um mánuð þegar ítalskur leyniþjónustumaður, Nicola Calipari, fékk hana lausa. Þegar keyrt var með Sgrena í átt að flugvelli skutu bandarískir hermenn á bílinn með þeim afleiðingum að Sgrena særðist en Calipari lést. Lík hins fimmtíu og eins árs gamla Nicola Calipari var flutt til Ítalíu í morgun og var tekið á móti því með viðhöfn. Enn er óljóst hvað nákvæmlgea gerðist þessa föstudagsnótt þegar skotið var á bílinn. Bandaríkjaher segir að bíllinn hafi nálgast vegatálma á ógnarhraða og ekki sinnt viðvörunarmerkjum. Því hafi verið ákveðið að skjóta. Sgrena hefur aðra sögu að segja. Hún hafi ekki vitað fyrr en hún hafi verið í miðri kúlnahríð sem borist hafi frá skriðdreka skammt frá. Ekki hafi verið gefin nein viðvörun um að árás yrði gerð ef bíllinn yrði ekki stöðvaður. Þetta sé algjörlega óskiljanlegt, jafnvel þótt hermennirnir hafi ekki vitað að þau yrðu þarna á ferð og myndu fara þarna í gegn. Þótt Bandaríkjaforseti hafi heitið opinberri rannsókn á því sem gerðist er líklegt að atvikið hafi nokkur pólitísk áhrif á Ítalíu þar sem andstaða við Íraksstríðið og ákvörðun ítalskra stjórnvalda að senda 3000 hermenn til Íraks er mikil.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×