Erlent

Töldu sig úr hættu

"Við töldum hættuna að baki eftir að búið var að bjarga mér. Þess í stað lentum við allt í einu í skothríð," sagði Giuliana Sgrena blaðamaður sem haldið var í gíslingu í mánuð í Írak. Bandarískir hermenn skutu á bíl sem hún var í eftir að hafa verið leyst úr gíslingunni. Leyniþjónustumaður sem bjargaði henni lést af skotsárum og Sgrena og tveir til viðbótar særðust í skotárásinni. Hermennirnir óttuðust að bílsprengjuárás væri í aðsigi og skutu því á bílinn. Bandarísk stjórnvöld hafa heitið rannsókn á atvikinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×