Erlent

Kviknaði í olíuskipi

Þyrla þurfti að bjarga áhöfn norsks olíuflutningaskips eftir að eldur kom upp í því nokkra kílómetra undan strönd Noregs. Eldurinn blossaði upp í vélarrúmi skipsins og fékk áhöfn skipsins, 28 Indverjar, ekkert við eldinn ráðið. Óttast er að olía kunni að leka úr skipinu og valda miklum skaða á lífríki sjávar. Norska ríkisútvarpið greindi frá því í gærkvöldi að skipstjóri olíuflutningaskipsins Fjord Champion hefði aldrei sent út neyðarkall heldur einungis varað við því að skipið ætti við vandamál að stríða. Tilkynningaskyldan uppgötvaði hins vegar hvað var á seyði og fyrirskipaði aðgerðir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×