Segja ökumann hafa óhlýðnast 5. mars 2005 00:01
Talsmaður Bandaríkjahers segir að ökumaður bíls með ítölskum gísl, sem nýbúið var að leysa úr haldi í Írak, hafi ekki sinnt viðvörunarskotum. Því hafi verið skotið á bílinn með þeim afleiðingum að gíslinn særðist og björgunarmaður hans lést. Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á málinu. Í mánuð var ítalska blaðakonan Giuliana Sgrena í haldi mannræningja í Írak. Ítalskur leyniþjónustumaður, Nicola Calipari, hjálpaði til við að fá hana lausa. Þegar keyrt var að bækistöðvum Bandaríkjamanna hófu bandarískir hermenn að skjóta á bílinn með þeim afleiðingum að Calipari lést og Sgrena særðist. Talsmaður Bandaríkjahers segir að bíllinn hafi nálgast vegatálma hersins á miklum hraða og því verið talinn grunsamlegur. Hermennirnir hafi fyrst gefið merki og skotið viðvörunarskotum en síðan hafi þeir skotið á vél bílsins. Ítalskar fréttastofur greina frá því að Calipari hafi hent sér yfir Sgrena til að vernda hana þegar skotárásin hófst. Gabriele Polo, ritstjóri Il Manifesto sem Sgrena vinnur hjá, var ómyrkur í máli. Hann sagði þetta brjálæði. Þetta væri rökrétt afleiðing ástands sem væri algjörlega stjórnlaust og allir gætu skotið til að afvopna fólk. Hann fullyrti enn fremur að ekki hefði verið um að ræða mistök af hálfu Bandaríkjamanna vegna skorts á samskiptum heldur morð og um það hefði verið skrifað í Il Manifesto í dag. Sgrena var veikburða þegar hún kom til Ítalíu í morgun þar sem Silvio Berlusconi, forsætisráðherra landsins, tók á móti henni. Hann hefur átt erfitt með að fá landa sína til að sætta sig við þátttöku Ítalíu í Íraksstríðinu og kallaði eftir skýringum frá Bush Bandaríkjaforseta sem hét ítarlegri opinberri rannsókn á því hvernig þetta gat gerst.
Erlent Fréttir Mest lesið Sigríður fannst heil á húfi Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Innlent Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Erlent Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Innlent Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Innlent Fleiri fréttir Leiðtogi í hvítrússnesku andspyrnuhreyfingunni frjáls Tugir látnir eftir þeir reyndu að sækja sér mat Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Aðgerðasinninn látinn laus en Hvíta húsið hyggst brottvísa Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Hyggst eftirláta á annað hundrað börnum sínum Telegram-auðinn Skrefi nær því að leyfa dauðvona fólki að leita sér dánaraðstoðar Sporvagni ekið inn í matarvagn í Gautaborg Danskur ráðherra kann ekki að meta auglýsingar Meta Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf Frestar aftur TikTok-banni Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Áhlaup ICE og óvissan veldur vandræðum Farið í gegnum „kolefnisþakið“ eftir þrjú ár Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Geimskipið sprakk á jörðu niðri Finnar draga sig út úr sáttmála gegn jarðsprengjum Leita „fjandskapar“ á samfélagsmiðlum námsmanna Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Staðfesta bann á meðferð trans barna Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“ Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar „Kannski geri ég það, kannski geri ég það ekki“ Færðu barn heiladauðrar konu í heiminn Sjá meira