Erlent

Kremlverjar með leynimakk

Ráðamenn í Kreml eru sagðir skipuleggja nýja ungliðahreyfingu sem á að tryggja að ekki geti komið til svipaðrar byltingar og varð í Úkraínu síðastliðið haust. Breska dagblaðið The Independent hermir að Vladislav Surkov, náinn samstarfsmaður Vladimirs Pútín, sé guðfaðir hennar. Hreyfingin, sem nefnist Nashi, er enn mjög leynileg en leiðtogar hennar ætla henni mikilvægt hlutverk í forsetakosningunum í Rússlandi sem ráðgerðar eru árið 2008. Þá eiga 300.000 manns að skipa samtökin og verja völd Pútíns með öllum tiltækum ráðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×