Erlent

Ný lög um brottnám barna innan ESB

Ný lög Evrópusambandsins um brottnám barna tóku gildi í dag. Á hverju ári eru 1500 börn numin á brott í Frakklandi einu og telja forystumenn Evrópusambandsins að fjöldi slíkra mála eigi eftir að aukast eftir því sem hjónaböndum fólks frá mismunandi aðildarlöndum fjölgar. Reglurnar segja til um hvaða dómstóll hefur dómsvald í forræðisdeilum og leggja skyldur á aðildarríki að framfylgja dómunum. Þær fjalla einnig um umgengnisrétt þess foreldris sem ekki fær forræðið og jafnframt er dómstólum bannað að kveða upp dóma án þess að hafa fengið að heyra hlið beggja foreldra og barnsins eða barnanna sem deilt er um.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×