Erlent

Handspengjan sprakk í eldhúsinu

Karlmaður í Króatíu lést þegar handsprengja sprakk á heimili hans í borginni Split í dag. Samkvæmt lögreglu virðist sem maðurinn hafi óvart sprengt handsprengjuna en líklegt er talið að hann hafi haldið að hún væri óvirk. Sprengjan sprakk í eldhúsi heimilisins og særðust þrír í sprengingunni, þar á meðal eiginkona mannsins sem sögð er lífshættulega slösuð. Ekki er ljóst hvernig maðurinn komst yfir handsprengjuna en mikið af vopnum er enn í höndum almennra borgara í Króatíu eftir stríðið á Balkanskaga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×