Erlent

Fundað um Palestínu í Lundúnum

Alþjóðleg ráðstefna um málefni Palestínu hófst í Lundúnum í morgun. Mahmoud Abbas, forseti heimastjórnar Palestínu, lýsti því yfir við upphaf ráðstefnunnar að hann myndi beita sér af öllum mætti fyrir friði og koma böndum á herskáa hópa Palestínumanna. Meðal gesta eru Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Enginn fulltrúi frá Ísrael kom á ráðstefnuna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×