Ekkert lát á óeirðunum 5. nóvember 2005 07:00 Eldarnir slökktir. Kveikt var í teppageymslu í Aulnay-sous-Bois í fyrrinótt og unnu yfir hundrað slökkviliðsmenn hörðum höndum fram á morgun að því að slökkva eldinn.
Óeirðirnar sem geisað hafa í úthverfum Parísar í rúma viku eru farnar að breiðast út um Frakkland. Í fyrrinótt voru ríflega fimm hundruð ökutæki eyðilögð og kveikt var í nokkrum byggingum. Ekkert lát er á ólgunni í Frakkland sem hófst í síðustu viku þegar tveir unglingspiltar biðu bana í spennistöð í Clichy-sous-Bois en íbúar hverfisins segja lögreglumenn hafa elt þá. Aðfaranótt föstudagsins var sú versta í óeirðahrinunni hingað til. Unglingahópar, vopnaðir kylfum og grjóti, fóru um úthverfi sem einkum eru byggð innflytjendum og eyðilögðu flest sem á vegi þeirra varð. Lögregla segir að 519 bifreiðar hafi verið brenndar til kaldra kola á Parísarsvæðinu og í Yvelines, vestur af höfuðborginni voru 78 strætisvagnar eyðilagðir. Fatlaður maður brenndist alvarlega þegar bensínsprengju var hent inn í strætisvagn sem hann var í í Sevran-hverfi. Í dögun hafði lögreglu að mestu tekist að koma á friði og spekt en áttatíu manns voru handteknir eftir átökin. Í Dijon, austar í landinu, var einnig kveikt í bílum. Til átaka kom í Rúðuborg og nágrenni hennar. svo og í Rónarhéruðunum, nærri Marseilles. Dominic de Villepin forsætisráðherra og Nicolas Sarkozy innanríkisráðherra hafa fundað um ástandið ásamt þing- og bæjarstjórnarmönnum hverfanna sem í hlut eiga. Framganga Sarkozy hefur raunar vakið nokkra athygli en hann sagði að ríkisstjórnin myndi ekki líða "vandræðageplum og óþjóðalýð að vaða uppi".
Erlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira