Örlög ráðast í nokkrum héruðum 16. október 2005 00:01
Talning er hafin eftir kosningu um stjórnarskrá Íraks í gær. Örlög stjórnarskrárinnar eru í höndum íbúa nokkurra héraða sem geta fellt hana með því að kjósa nei. Gríðarleg öryggisgæsla varð til þess að uppreisnar- og hryðjuverkamenn gátu ekki staðið við hótanir um blóðbað í gær og sögðu talsmenn Sameinuðu þjóðanna kosningarnar hafa farið ótrúlega friðsamlega fram. Tveir þriðju hlutar kjósenda í þremur héruðum þurfa að hafna stjórnarskránni til að fella hana og að líkindum yrðu það héruð þar sem súnnítar eru í meirihluta. Kosningaþátttaka þeirra var að sögn eftirlitsmanna góð en að líkindum ekki svo góð að andstæðingar stjórnarskrárinnar eigi þess kost að fella hana. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gekk meira að segja svo langt í Lundúnum í morgun að segja að líkast til hefði stjórnarskráin verið samþykkt - og þó hafa hvorki verið birtar útgönguspár né fyrstu niðurstöður talningar. Rice sagði að kjörsókn hefði verið á milli 63 og 64 prósent, sem er betri kjörsókn en í þingkosningunum í janúar. Verði stjórnarskráin samþykkt er næsta skref þingkosningar í ný í desember, en þá verður kosið þing sem á að sitja í fjögur ár og vona stjórnvöld í Washington að sú kosning marki tímamót og að Írak verði í kjölfarið nær því að verða friðsamlegur bandamaður Vesturlanda. Þó að kjördagur væri friðsamlegur vöknuðu íbúar Bagdad-borgar þó við sprengjugný í morgun þegar ráðist var á græna svæðið, þar sem ríkisstjórnin hefur aðsetur sitt.
Erlent Fréttir Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira