Hryðjuverkamannanna leitað 25. júlí 2005 00:01
Átök brutust út þegar egypska lögreglan umkringdi tvö þorp þar sem talið var að hryðjuverkamenn héldu til. Alþjóðlegum hryðjuverkamönnum er kennt um tilræðin í Sharm el Sheikh sem kostuðu áttatíu og átta lífið. Yfirvöld í Egyptalandi vilja ná tali af tugum manna og hafa meðal annars dreift myndum af fimmtíu sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkunum í Sharm el Sheikh. Þeirra á meðal er nokkur fjöldi Pakistana en reynist þeir eiga aðild að tilræðunum væri það nýmæli. Hingað til hafa heimamenn staðið fyrir hryðjuverkunum í landinu, ekki síst á ferðamannastaði. Alþjóðlegir hryðjuverkamenn eru meðal þeirra sem lýst hefur verið eftir og í dag voru tvö bedúínaþorp skammt frá Sharm el Sheikh umkringd. Grunur lék á að tveir Pakistananna héldu þar til og mun hafa komið til skotbardaga á milli lögreglu og bedúína sem vernduðu Pakistanana. Aðild Pakistana að tilræðunum þykir benda sterklega til þess að al-Qaida hafi verið að verki en Osama bin Laden og fylgismenn hans halda til á landamærum Pakistans og Afganistans. Þessar fregnir og árásirnar í London, þar sem Bretar af pakistönskum uppruna voru að verki, hefur beint kastljósinu að Pakistan og stjórnvöldum þar. Forsetinn, Perves Musharraf, segir her og leyniþjónustu landsins hafa gengið frá al-Qaida sem eigi sér hvergi skjól. Núna taki hver skilaboð 1-2 mánuði að fara á milli staða og því sé fráleitt við þessar aðstæður að samtökin, eða einhver annar, geti stjórnað árásum í London, Sharm el Sheikh, Istanbúl eða Afríku frá Pakistan. Engu að síður þykja starfsaðferðir og ummerki á báðum stöðum benda til þess að Musharraf hafi rangt fyrir sér.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira