Nýjar upplýsingar um atburðina 31. júlí 2005 00:01
Átta árum eftir að Díana Bretaprinsessa týndi lífi í bílslysi í París eru komnar fram nýjar upplýsingar um atburði næturinnar þegar hún dó. Díana var að tala í farsímann sinn þegar Mercedes Benz bifreiðin sem hún var í ásamt ástmanni sínum Dodi Fayed lenti í slysi með þeim afleiðingum að þau létust bæði. Scotland Yard hefur tekist að rekja símtalið og fundið þann sem Díana var að ræða við. Viðmælandinn hefur þegar verið yfirheyrður en ekki liggur fyrir hvaða upplýsingar hann gat gefið. Lögreglan vill meðal annars vita hvað viðmælandinn heyrði, hvernig hugarástand Díönu var og hvað hún sagði. Þær upplýsingar gætu varpað ljósi á ýmsar samsæriskenningar sem komið hafa fram frá því slysið var 31. ágúst 1997. Opinber rannsókn í Frakklandi leiddi í ljós að slysið mætti rekja til ofsaaksturs og þess að bílstjórinn, Henri Paul, var drukkinn. Breska lögreglan hefur hins vegar komist að því að Paul var á mála hjá frönsku leyniþjónustunni og hafði aðeins skömmu fyrir bílferðina afdrifaríku átt fund með umsjónarmanni sínum þar. Franska lögreglan hefur einnig komist að því að Díana var ekki barnshafandi þegar hún lést; hún hafði ekki í hyggju að trúlofast eða ganga í hjónaband með Dodi Fayed; breska leyniþjónustan var ekki að fylgjast með Díönu þegar hún lést; og að Dodi og Díana hefðu lifað af hefðu þau verið í bílbeltum. Þess er nú beðið að greint verði frá því hvaða upplýsingar viðmælandi Díönu í símtalinu getur veitt.
Erlent Fréttir Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira