Ár frá gíslatökunni í Beslan 1. september 2005 00:01
Í dag er ár frá því að uppreisnarmenn réðust inn í grunnskóla í Beslan í Rússlandi og tóku þrettán hundruð manns í gíslingu. Gíslatökunni lauk þegar rússneskar öryggissveitir réðust inn í skólann, með þeim afleiðingum að þrjú hundruð og þrjátíu manns létust, þar af meira en helmingurinn börn. Bjöllur hringdu í Beslan upp úr klukkan níu í morgun, þegar nákvæmlega ár var liðið frá því að tsjetsjenskir uppreisnarmenn réðust inn í skólann og tóku alla sem voru inni í honum í gíslingu. Þrettán hundruð manns voru í haldi uppreisnarmannanna í þrjá daga, eða allt þangað til að rússneskar öryggissveitir réðust inn í skólann og blóðbaðið upphófst. Ættingjar þeirra sem létust og slösuðust í Beslan komu saman við skólann í dag og lögðu þar blómsveigi og kveiktu á kertum. Þriggja daga röð atburða fer nú af stað í Beslan til minningar um fórnarlömbin. Íþróttasalur skólans er orðinn að minningarreit og hann er þakinn ljósmyndum af þeim sem létust. Sorgin liggur enn eins og mara á íbúunum í Beslan og margar mæður klæðast enn bara svörtu. Þá er ekki síður reiði í loftinu, en aðstandendur fórnarlambanna telja sig ekki enn hafa fengið skýringar á því af hverju gíslatakan endaði með því að öryggissveitir óðu inn og af hverju ekki var reynt að semja við uppreisnarmennina. Margir kenna yfirvöldum um hörmungarnar og til marks um það verður Vladimír Pútín Rússlandsforseta ekki boðið að vera viðstaddur minngingaratburðina næstu daga. Hann hélt í morgun mínútu þögn með nemendum háskólans í Krasnódar, þar sem hann hélt ávarp. Á föstudaginn kemur fer hópur mæðra til Kremlinar á fund Pútíns, sem væntanlega fær þar fjöldann allan af óþægilegum spurningum.
Erlent Fréttir Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Fleiri fréttir Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Sjá meira