NASA slær geimferðum á frest 28. júlí 2005 00:01
Bandaríska geimferðastofnunin NASA ætlar að slá frekari geimferðum á frest á meðan sérfræðingar rannsaka stykki sem duttu af eldsneytistanki geimferjunnar Discovery við flugtak á þriðjudaginn. Stykkin tvö sem féllu af tanknum þegar Discovery var skotið á loft voru einangrunarfroðuklumpar. Fyrir tveimur og hálfu ári duttu einmitt svipuð stykki af geimferjunni Kólumbíu, sem síðar leiddi til þess að hún fórst á leiðinni inn í lofthjúp jarðar. Eftir ýtarlega skoðun á geimferjunni Discovery í gær og í morgun, með fjarstýrðum myndavélum sem tengdar eru við vélina, hefur þó ekkert komið í ljós sem gefur tilefni til þess að ætla að afleiðingarnar nú verði jafnhörmulegar og fyrir tveimur og hálfu ári. Froðuklumparnir lentu ekki á ferjunni þegar þeir duttu af og ollu því ekki frekari skemmdum. Discovery lendir í alþjóðlegu geimstöðinni nú um hádegið og þar verða hugsanlegar skemmdir á vélinni metnar enn frekar. Til að ná myndum af maga ferjunnar, fer hún í heilan hring aftur fyrir sig rétt áður en hún lendir, en slíkt hefur aldrei verið gert áður. Ef skemmdirnar eru alvarlegar og ekki þykir rétt að fara á loft á nýjan leik, geta geimfaranir dvalið í geimstöðinni uns aðstoð berst.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira