Lúkasjenkó tekur Pólverja fyrir 28. júlí 2005 00:01
Viðleitni Pólverja til að ýta undir lýðræði í nágrannaríkinu Hvíta-Rússlandi hafa framkallað æ harðari viðbrögð af hálfu stjórnvalda í sovétlýðveldinu fyrrverandi. Þessi núningur náði nýju hámarki í gær er Pólverjar kölluðu sendiherra sinn heim frá hvít-rússnesku höfuðborginni Minsk. "Við kölluðum sendiherra okkar í Minsk heim til skrafs og ráðagerða og hann mun ekki snúa aftur fyrr en rætist úr ástandinu og kúguninni linnir," tjáði pólski utanríkisráðherrann Adam Rotfeld blaðamönnum í Varsjá. Daginn áður höfðu hvít-rússnesk yfirvöld handtekið oddvita pólska minnihlutans í Hvíta-Rússlandi, yfirheyrt og sakað um njósnir og fjárdrátt. Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands sem stýrt hefur landinu frá árinu 1994 og margir saka um einræðistilburði, vill fyrir alla muni hindra að stjórnarandstöðuöflum í landi hans takist að mynda ámóta öfluga hreyfingu og nýlega gerðist bæði í Úkraínu og Georgíu, en í báðum þessum fyrrverandi sovétlýðveldum komust til valda umbótasinnar hliðhollir nánum tengslum við Vesturlönd.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira