Erlent

Heppin amma

Donna Goeppert, 55 ára gömul amma í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, vann eina milljón dollara, andvirði um 65 milljóna króna, í lottói í vikunni. Það væri ekki sérstaklega í frásögur færandi nema vegna þess að hún hafði áður unnið milljón dollara hámarksvinninginn. Tölfræðilegar líkur á að fá vinninginn einu sinni eru 1,5 milljónir gegn einum, að því er greint er frá á fréttavef BBC. Að vinna hann tvisvar eru líkurnar 419 milljónir gegn einum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×