Erlent

Samið við súnní-araba

Sex bandarískir hermenn féllu í sprengju-og skotárásum í vesturhluta Íraks í gær og minnst átta írakskir lögreglumenn létu lífið í sjálfmorðs-bílsprengjuárás nærri Bagdadflugvelli. Ofbeldisverkin eru talinn liður í baráttu uppreisnarmanna gegn því að nýju stjórnkerfi Íraks takist að festa sig í sessi. Árásirnar voru gerðar er stjórnmálamenn úr röðum sjía-múslima luku við að reyna að fá fulltrúa minnihluta súnní-araba til að taka þátt í að semja nýja stjórnarskrá landsins. Gert var samkomulag um það hversu marga fulltrúa súnní-arabar muni senda til setu á stjórnlagaþinginu. Til stendur að halda tvær mikilvægar kosningar í landinu í haust - þjóðaratkvæðagreiðslu um nýju stjórnarskrána og þingkosningar. Búist er við því að uppreisnarmenn haldi áfram að reyna að spilla fyrir ferlinu með ofbeldisverkum í aðdraganda kosninganna. Frá því ríkisstjórnin sem nú situr tók við í lok apríl hafa um 1.100 manns látið lífið í árásum uppreisnarmanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×