Erlent

Arftaki Concorde

Frakkar og Japanir hafa hafið samstarf um þróun á nýrri háhraðaþotu sem gæti tekið við hlutverki Concorde-þotanna sem lagt var fyrir fullt og allt í fyrra. Fyrirtæki frá báðum löndum hafa skuldbundið sig til að verja samtals 1,84 milljónum Bandaríkjadala árlega næstu þrjú ár til að þróa hugmyndina. Japanir hafa átt árángursríkar tilraunir með þotuhreyfil sem ætti að geta náð allt að fimmföldum hraða hljóðsins en Concorde flaug á tvöföldum hljóðhraða. Það sem varð Concorde að falli var há bilanatíðni og gríðarlegur eldsneytiskostnaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×