Kosningabaráttu lokið í Íran 16. júní 2005 00:01
Líflegri forsetakosningabaráttu lauk í nótt í Íran. Ungt fólk var áberandi á kosningasamkundum þrátt fyrir lítinn stjórnmálaáhuga en margir sögðust þar einungis til að skemmta sér. Kannanir benda til þess að Akbar Hashemi Rafsanjani, sem var forseti Írans á árunum 1987-1997, njóti mesta fylgis af frambjóðendunum sjö en hann þykir hófsamur klerkur. Á hæla honum fylgja umbótasinni og harðlínumaður. Alls reyndu um þúsund manns að bjóða sig fram, en klerkaráðið hafnaði flestum þeirra. Talið er öruggt að aðra umferð kosninga þurfi til að einhver frambjóðendanna hljóti nægilega mikið fylgi til að hafa sigur. Frambjóðendur hafa ekki síst reynt að höfða til ungs fólks enda er meira en helmingur Írana undir 25 ára aldri. Þeir hafa meðal annars lofað atvinnusköpun og félagslegu frelsi. Ungt fólk hefur einnig verið áberandi á kosningafundum og samkomum þó að kannanir sýni að sáralítill áhugi sé á kosningunum meðal ungs fólks. Kosningasamkundurnar gefa ungu fólki hins vegar tækifæri til að skemmta sér fram eftir nóttu án afskipta lögreglu og þar geta kynin skemmt sér saman óáreitt. Ungir viðmælendur erlendra fréttastofa kveðast margir ætla að sniðganga kosningarnar enda jafngildi þátttaka stuðningi við íslamska lýðveldið. Úrslit forsetakosninganna skipta þó ekki miklu máli um á framtíðarstefnu landsins. Völdin eru eftir sem áður að mestu í höndum varðaráðsins sem skipað er harðlínumönnum. Kosningaþátttaka getur hins vegar gefið hugmynd um pólitíska stemmningu í landinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira