Hafi vitað af vilja til samninga 16. júní 2005 00:01
Ný gögn benda til þess að Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hafi vitað af vilja fyrirtækis sem sonur hans vann hjá til að fá arðbæran samning við Sameinuðu þjóðirnar vegna áætlunar um olíu fyrir mat í Írak. Ekki er langt um liðið frá því að sérstök rannsóknarnefnd hreinsaði Annan af áburði þess efnis að hann hefði hlutast til um að svissneska fyrirtækið Cotecna fengi mjög arðvænlegan samning um umsjón með ákveðnum hluta starfs Sameinuðu þjóðanna í Írak. Annan kvaðst á sínum tíma ekkert hafa vitað af málinu þó að sonur hans hefði starfað hjá fyrirtækinu. Nú eru hins vegar komin fram ný gögn um að Annan hafi átt fund með fulltrúum Cotecna aðeins tíu dögum áður en fyrirtækið fékk samninginn. Michael Wilson, náinn vinur Annans og starfsmaður Cotecna, gerði minnisblað um fund með Annan og samferðarmönnum hans í París árið 1998. Þar, segir Wilson, var áhugi fyrirtækisins á samningnum ræddur. Talsmaður Annans segir hann ekki minnast þessa fundar, skipuleggjandi ferðarinnar segir hann ekki hafa verið á dagskrá og ekkert í opinberum skjölum bendir til þess að hann hafi átt sér stað. Talsmaðurinn sagði hins vegar mögulegt að Annan hafi hitt Wilson og Kojo, son sinn, á einkafundi í París en það hefði hvergi verið skráð.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira