Fjárhagstjónið verður mikið 8. nóvember 2005 07:00 Hrátt fuglakjöt. Rúmlega sextíu manns hafa dáið úr fuglaflensu í Asíu undanfarin misseri en þeir eiga það sameiginlegt að hafa komist í snertingu við sýkta fugla eða kjöt.
Banvænn fuglaflensufaraldur er svo gott sem óumflýjanlegur og ef alþjóðasamfélagið undirbýr sig ekki nægilega vel geta ómældar þjáningar beðið jarðarbúa. Þetta voru skilaboð framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO í gær. "Við höfum orðið vitni að látlausri útbreiðslu fuglaflensu á meðal farfugla og alifugla," sagði Lee Jong-wook, framvkvæmdastjóri WHO, á samræmingarfundi sérfræðinga á sviði heilbrigðismála víðsvegar að úr heiminum í Genf í gær. Í ávarpi sínu lagði Lee áherslu á að H5N1-veiran hefði ekki ennþá stökkbreyst svo hún gæti borist á milli manna en það væri samt sem áður aðeins tímaspursmál. Á fundinum greindi Milan Brahmbhatt, aðalhagfræðingur Alþjóðabankans á sviði Austur-Asíu og Kyrrahafslanda, frá mati bankans á efnahagsáhrifum heimsfaraldurs fuglaflensu. Samkvæmt spám Alþjóðabankans myndi slíkur faraldur valda tveggja prósenta samdrætti á heimsframleiðslunní á ári, sem jafngildir um 50.000 milljarða króna tekjutapi. Til samanburðar má geta að árleg þjóðarframleiðsla Íslendinga er um 800 milljarðar króna. Hagfræðingar bankans reikna með að stærstur hluti samdráttarins verði vegna "ofsahræðslu og óðagots", líkt og gerðist þegar bráðalungnabólgan SARS kom upp árið 2003 en þá dróst einmitt þjóðarframleiðsla ríkja Austur-Asíu saman um tvö prósent. Á fundinum ítrekuðu talsmenn WHO enn og aftur nauðsyn þess fyrir alþjóðasamfélagið að undirbúa sig í tíma fyrir flensufaraldurinn yfirvofandi en stofnunin telur líklegt að 7,4 milljónir manna gætu látist úr veikinni.
Erlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjá meira