Tíu ár frá fjöldamorðunum 11. júlí 2005 00:01
Tugþúsundir minntust þess í Srebrenica í Bosníu í dag að tíu ár eru liðin frá því að átta þúsund íslamskir karlar og drengir voru myrtir á hrottalegan hátt af Bosníu-Serbum í Bosníustríðinu. Fjöldamorðin í Srebrenica í júlí árið 1995 voru þau verstu í Evrópu frá því í síðari heimstyrjöldinni. Hersveitir Bosníu-Serba, undir forystu Radovans Karadzic, þáverandi forseta Bosníu-Serba, og Ratkos Mladic herforingja söfnuðu körlum og drengjum saman á yfirlýstu griðasvæði Sameinuðu þjóðanna, skutu þá til bana og hentu líkunum í fjöldagrafir. Tugþúsundir, þar á meðal ættingjar hinna látnu, tóku þátt í minningarathöfn í Potocari kirkjugarðinum í Srebrenica og fylgdust með þegar líkamsleifar sex hundruð og tíu karla voru bornar til grafar en þegar hafa fundist um sextíu fjöldagrafir. Karadzic og Mladic eru ákærðir fyrir þjóðarmorð vegna atburðanna en þeir hafa verið á flótta undan réttvísinni í tíu ár. Pierre-Richard Prosper, fulltrúi stríðsglæpadómstólsins, segir dómstólinn ákveðinn í að finna Karadzic og Mladic og tryggja að þeir svari til saka frammi fyrir honum í Haag. „Ég fullyrði að við teljum að dómstóllinn verði að starfa svo lengi sem þeir ganga lausir,“ segir Prosper.
Erlent Fréttir Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira