Allt í hnút í ESB 17. júní 2005 00:01
Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, gerði hlé á leiðtogafundi Evrópusambandsins stuttu eftir hádegi í gær. Umræður um fjárlög sambandsins fyrir tímabilið 2007 til 2013 fóru í hnút og Juncker mun hafa boðað hina leiðtogana 24 á sinn fund til þess að ræða einslega við þá áður en lengra verður haldið. Leiðtogarnir kappkosta við að halda lífi í stjórnarskrársáttmálanum þótt lítil von sé um að það takist. Í drögum að ályktun sem leiðtogarnir ræddu í gær kemur meðal annars fram, að þótt Frakkar og Hollendingar hafi hafnað sáttmálanum þýði það ekki að gjá hafi myndast á milli Evrópusambandsins og borgara þess, og tefli Evrópusamrunanum ekki endilega í tvísýnu. Það hafi aldrei verið jafn aðkallandi og einmitt nú að halda honum áfram. "Evrópusambandið hefur gert okkur kleift að tryggja velferð þegna okkar, gildi okkar og hagsmuni, og gert okkur að leiðandi afli í alþjóðamálum," segir meðal annars í drögunum. Leiðtogar ESB-ríkjanna 25 viðurkenna þó að þeir hafi staðið sig illa í að kynna þegnum sínum stjórnarskrána og þurfi að taka sig á í þeim efnum. Þá hefur verið ákveðið að framlengja frestinn til að staðfesta stjórnarskrána, en hann átti að renna út í nóvember á næsta ári. Nýr frestur verður ákveðinn að ári. Það er þó ljóst að við ramman reip að draga. Svíar munu ekki staðfesta stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins nema Frakkar og Hollendingar boði til annarra þjóðaratkvæðagreiðslna, segir Göran Persson forsætisráðherra Svíþjóðar. "Ef þeir geta ekki sannfært þegna sína um að kjósa aftur um sömu stjórnarskrá, er dæmið fallið um sjálft sig og óþarfi að halda fullgildingarferlinu áfram."
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira