Erlent

Hjálpargögn á leiðinni til BNA

Byrjað er að flytja hjálpargögn frá Evrópu til Bandaríkjanna. Björgunarmenn leita nú lifenda í rústum borga og bæja í Louisiana, Mississippi og Alabama, og safna saman líkum, en fjöldi látinna hleypur líklega á þúsundum. Fyrstu vélarnar, hlaðnar teppum, matarpökkum og sjúkragögnum fóru frá Bretlandi í morgun. Flogið er til Little Rock í Arkansas, þaðan sem hjálpargögnunum er dreift til neyðarskýla og - búða vítt og breitt um Suðurríkin. Evrópusambandslöndin ætla að samhæfa aðgerðir, en hjálpargögn verða send víða að úr álfunni svo lengi sem Bandaríkjamenn óska eftir því. Flestir flóttamannanna hafa verið fluttir til Texas, um 240.000 og hefur ríkisstjórinn Rick Perry lýst því yfir að Texas geti vart tekið við fleirum. Farið er að flytja hópa flóttamanna til Arizona, Colorado, Indiana, Tennessee og víðar. Samtals er um milljón manna heimilislaus eftir yfirreið fellibylsins Katrínar og er unnið að því að koma þeim öllum fyrir í öruggu skjóli. Hreinsunarstarf er því fyrst nún að komast á fullan skrið og hafa yfirvöld varað við því að ýmislegt miður fagurt eigi eftir að koma í ljós þegar farið verður að leita í rústum og dæla vatninu burt. Nobadol Somboonsub, yfirmaður kennslanefndar Tælands, sem hafði umsjón með því að kennsl yrðu borin á lík þeirra sem létust í flóðbylgjunni á annan í jólum, hefur sent bandarískum yfirvöldum ráðleggingar áður en slíkt starf hefst á flóðasvæðunum. Hann segir algerlega nauðsynlegt að rannsaka hvert lík fyrir sig og safna gögnunum saman í grunn. Það sé ekki nóg að meintur ættingi komi og beri kennsl á lík, því það sé því miður staðreynd að til sé fólk sem nýti sér neyðarástand sem þetta og reyni að komast yfir eignir og líftryggingafé ókunnugra. Tælendingar þurftu að bera kennsl á tæplega fimm þúsund og fjögur hundruð lík frá tuttugu og fimm löndum, svo Somboonsub talar af reynslu, sem vert er að taka mark á. Bush Bandaríkjaforseti heimsækir flóðasvæðin að nýju í dag og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra heimsótti Alabama í gær. Hún sagðist enga trú hafa á því að hörundslitur eða stétt hefði haft nokkuð að gera með það hversu seint var brugðist við neyð fólks sem varð eftir í New Orleans, en mikil biturð ríkir í garð yfirvalda meðal fátækra, svartra íbúa borgarinnar, sem finnst sem þeir hafi verið yfirgefnir og gleymdir þegar neyðin var stærst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×