Hjálpargögn á leiðinni til BNA 5. september 2005 00:01
Byrjað er að flytja hjálpargögn frá Evrópu til Bandaríkjanna. Björgunarmenn leita nú lifenda í rústum borga og bæja í Louisiana, Mississippi og Alabama, og safna saman líkum, en fjöldi látinna hleypur líklega á þúsundum. Fyrstu vélarnar, hlaðnar teppum, matarpökkum og sjúkragögnum fóru frá Bretlandi í morgun. Flogið er til Little Rock í Arkansas, þaðan sem hjálpargögnunum er dreift til neyðarskýla og - búða vítt og breitt um Suðurríkin. Evrópusambandslöndin ætla að samhæfa aðgerðir, en hjálpargögn verða send víða að úr álfunni svo lengi sem Bandaríkjamenn óska eftir því. Flestir flóttamannanna hafa verið fluttir til Texas, um 240.000 og hefur ríkisstjórinn Rick Perry lýst því yfir að Texas geti vart tekið við fleirum. Farið er að flytja hópa flóttamanna til Arizona, Colorado, Indiana, Tennessee og víðar. Samtals er um milljón manna heimilislaus eftir yfirreið fellibylsins Katrínar og er unnið að því að koma þeim öllum fyrir í öruggu skjóli. Hreinsunarstarf er því fyrst nún að komast á fullan skrið og hafa yfirvöld varað við því að ýmislegt miður fagurt eigi eftir að koma í ljós þegar farið verður að leita í rústum og dæla vatninu burt. Nobadol Somboonsub, yfirmaður kennslanefndar Tælands, sem hafði umsjón með því að kennsl yrðu borin á lík þeirra sem létust í flóðbylgjunni á annan í jólum, hefur sent bandarískum yfirvöldum ráðleggingar áður en slíkt starf hefst á flóðasvæðunum. Hann segir algerlega nauðsynlegt að rannsaka hvert lík fyrir sig og safna gögnunum saman í grunn. Það sé ekki nóg að meintur ættingi komi og beri kennsl á lík, því það sé því miður staðreynd að til sé fólk sem nýti sér neyðarástand sem þetta og reyni að komast yfir eignir og líftryggingafé ókunnugra. Tælendingar þurftu að bera kennsl á tæplega fimm þúsund og fjögur hundruð lík frá tuttugu og fimm löndum, svo Somboonsub talar af reynslu, sem vert er að taka mark á. Bush Bandaríkjaforseti heimsækir flóðasvæðin að nýju í dag og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra heimsótti Alabama í gær. Hún sagðist enga trú hafa á því að hörundslitur eða stétt hefði haft nokkuð að gera með það hversu seint var brugðist við neyð fólks sem varð eftir í New Orleans, en mikil biturð ríkir í garð yfirvalda meðal fátækra, svartra íbúa borgarinnar, sem finnst sem þeir hafi verið yfirgefnir og gleymdir þegar neyðin var stærst.
Erlent Fréttir Mest lesið Ísraelsher stöðvaði skútuna og handtók áhöfnina Erlent Skotin með gúmmíkúlu í beinni frá mótmælunum Erlent Íslendingur á válista CIA árið 1970 Innlent Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Innlent Telja Ísraelsher hafa umkringt bát Thunberg Erlent Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk Innlent Grafalvarlegt ástand í LA: „Þetta eru einhverjar fasískar leikaðferðir“ Erlent Forsetaframbjóðandi skotinn í höfuðið Erlent „Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“ Innlent Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Innlent Fleiri fréttir Skotin með gúmmíkúlu í beinni frá mótmælunum Ísraelsher stöðvaði skútuna og handtók áhöfnina Telja Ísraelsher hafa umkringt bát Thunberg Forsetaframbjóðandi skotinn í höfuðið Grafalvarlegt ástand í LA: „Þetta eru einhverjar fasískar leikaðferðir“ Rannsökuðu eigin samsæriskenningar um fljúgandi furðuhluti Ísraelsmenn undirbúi árás á skútuna með Gretu Thunberg um borð Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Grófu látin og særð börn upp úr rústum Wagner yfirgefur Malí í skugga mikilla árása Mótmæli og átök eftir áhlaup ICE í Los Angeles Aftur logar eldur í Læradal Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Stærsta árásin á Kharkív hingað til Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur Engin sátt í sjónmáli: Trump vill selja Tesluna Klóra sér í kollinum yfir stórri reikistjörnu á braut um litla stjörnu Reyna að stilla til friðar með símtali Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Bras á breska Umbótaflokknum þrátt fyrir velgengnina Brotlentu öðru einkafari á tunglinu Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Eldar loguðu í Kænugarði eftir umfangsmiklar árásir Rússa Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Ákærð fyrir að myrða táning en líkið enn ófundið Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks Sjá meira