Bush varar Blair við væntingum 4. júlí 2005 00:01
Tony Blair ætti ekki að búast við neinum greiðum á fundi leiðtoga stærstu iðnríkja heims. Þetta segir George Bush og segir stuðning Blairs við Íraksstríðið alls ekki þýða að hann fái eitthvað í staðinn. Bush lét þessi orð falla í viðtali við bresku sjónvarpsstöðina ITV, en hann kemur í dag til Skotlands til viðræðna við aðra leiðtoga átta stærstu iðnríkja heims. Þar á meðal annars að ræða skuldir þriðja heimsins og hlýnun jarðar. Hvorugt efnið er Bush sérstaklega að skapi en breskir fjölmiðlar hafa undanfarið greint frá því að Tony Blair hyggist beita Bush þrýstingi og telji sig eiga eitt og annað inni hjá Bandaríkjaforseta. Ekki að mati Bush. Hann sagði í viðtalinu að samband þeirra Blairs gengi ekki út á að svara í sömu mynt. Sjálfur færi hann á fundinn í Gleneagles í Skotlandi ekki til að gera lítið úr Tony Blair, heldur til að verja hagsmuni Bandaríkjanna. Hann útilokaði jafnframt að undirrita samkomulag iðnríkjanna um umhverfismál og baráttu gegn útblæstri gróðurhúsalofttegunda og sagði það líkjast Kyoto-samkomulaginu. Bush sagði því samkomulagi upp fyrir hönd Bandaríkjanna árið 2001 og sagði að það hefði að öðrum kosti lagt efnahags landsins í rúst. Hann viðurkenndi hins vegar að hlýnun jarðar væri alvarlegt langtímavandamál sem taka yrði á og jafnframt að það væru ekki síst verk mannskepnunnar sem yllu gróðurhúsaáhrifum. Bush kvað nær að þróa nýja tækni til að takast á við vandann, og sagði Bandaríkin vinna að einangrun koltvísýrings í neðanjarðarbrunnum, auk þess að þróa vetnisknúin farartæki og fleira í þeim dúr. Annað umræðuefni á fundinum í Skotlandi eru skuldir þriðja heimsins og ekki síst hvort að hætta eigi niðurgreiðslum á landbúnaðarafurðum. Bush kvaðst reiðubúinn til þess, gerði Evrópusambandið slíkt hið sama, en það er talið mjög ólíklegt.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Sjá meira