Aubenas segir frá eldraun sinni 14. júní 2005 00:01 "
Ég var í fimm mánuði með bundið fyrir augun í svörtum loftlausum kjallara án þessa að segja orð," sagði Florence Aubenas, blaðakona franska dagblaðsins Libération á blaðamannafundi í París í gær. Hún lýsti þar þeim aðstæðum sem hún bjó við ásamt írönskum fylgdarmanni sínum, Houssein Hanoun al-Saaid. Rödd hennar var rám en hún sagði það stafa af því að í fimm mánuði hefði hún nánast ekkert sagt og nú hefði hún tekið upp fyrri iðju, að tala stanslaust. Florence og Houssein voru í haldi mannræningja í 157 daga, um áttatíu kílómetra fyrir utan Bagdad. Þar bjuggu þau í kjallara, bundin á höndum og fótum með bundið fyrir augun, án þess að sjá mun á nóttu eða degi. Hún sagði frá í léttum tón en um leið tók hún fram það væri sín aðferð til að komast heil frá þessari reynslu. Henni hefði ekki verið hlátur í huga meðan á haldinu stóð, enda bjóst hún jafnvel við því að verða þá og þegar tekin af lífi. Florence sagðist í upphafi hafa verið sökuð um njósnir og að það hefði vakið hlátur mannræningjanna að Frakkar sendu konu til Íraks til að fjalla um stjórnmálaástandið í landinu. "Líf mitt snerist um tuttugu skref á salerni og til baka og örfá orð við verðina: t.d. "númer 6, klósett," sagði Florence en 6 var hennar númer sem gísls. Hreinlæti fólst í einni sturtu á mánuði, maturinn var brauð og egg á morgnana og hrísgrjón í hádeginu. Þess á milli var óendanlegur tíminn sem virtist aldrei ætla að líða í herbergi sem var um það bil fjórir metrar á lengd og tveir á breidd. Eitt sinn var hún sökuð um að tala við gísl sem deildi með henni herbergi og þrátt fyrir neitun voru þau bæði leidd út og barin. Það var ekki fyrr en fyrir tíu dögum þegar frelsun hennar lá í loftinu að Florence komst að því að mánuðum saman hafði hún setið í svörtum kjallaranum á dýnu á móti leiðsögumanni sínum, Houssein Hanoun al-Saaid. "Mér líður allt í einu miklu betur," voru fyrstu orð Florence Aubenas við komuna til Frakklands er hún var spurð um líðan sína. Þau mælti hún með bros á vör. Hún sýnir ótrúlegan andlegan styrk, þrátt fyrir slæman aðbúnan undanfarið og hún virðist enn sjálfri sér lík. Því er þó ekki að neita að það var óttalega föl og horuð kona sem sagði sögu sína á blaðamannafundinum og í augnaráði hennar var dapurleiki. Margir gíslar komast ekki lifandi heim. Oftast er um að ræða Íraka sem ekki hafa nein ráð eða sambönd til að greiða mannræningjum lausnargjald. Margt er enn á huldu um brottnám og frelsun Florence og Husseins, til dæmis hvort lausnargjald hafi verið greitt. Sjálf segist hún aldrei hafa heyrt talað um peninga. Frönsk yfirvöld halda fast við þá opinberu stefnu að svo sé ekki, en sterkur orðrómur er á kreiki í fjölmiðlum í Frakklandi um að fjórar milljónir dollara hafi verið greiddar fyrir Florence og Houssein. Því neitar Philippe Douste-Blazy, utanríkisráðherra. Ýmislegt verður aldrei skýrt þar sem leyniþjónustan franska tók á móti blaðakonunni og yfirheyrði hana við komuna til Frakklands. Því má ljóst vera að hún getur ekki sagt allan sannleikann.
Erlent Fréttir Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Sjá meira