Erlent

Tvöfalt fleiri látnir í Kína?

Flóðbylgjan sem skall á barnaskóla í Kína á laugardaginn kann að hafa orðið allt að 200 manns að bana, einkum börnum. Frá þessu greindu kínverskir fjölmiðlar í morgun. Í nokkrum þeirra er fullyrt að minnst tvöfalt fleiri hafi látist en greint hafi verið frá hingað til. Alls voru rúmlega 350 börn á aldrinum sex til fjórtán ára í skólanum þegar flóðbylgjan skall á honum og segja kínverskir fjölmiðlar að yngstu börnin hafi átt litla möguleika þegar kröftug bylgjan æddi í gegnum skólann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×