Fundu lík af 2500 ára stúlku 21. júní 2005 00:01
Þýska lögreglan var kölluð til þegar líkamsleifar unglingsstúlku fundust í Neðra-Saxlandi. Lögreglan fól hins vegar fornleifafræðingum málið. Líkið var 2500 ára gamalt en ótrúlega vel varðveitt. Það er talið vera einn merkasti fornleifafundur Evrópu í áratugi. Það voru mótekjumenn í Uchter sem fundu fyrstu líkamshlutana árið 2000, bein í jörðu. Lögregla var kölluð til en eftirgrennslan hennar skilaði litlu. Í janúar á þessu ári fór lögregla aftur á stúfana þegar mótekjumenn fundu mannshönd á sama svæði. Við nánari eftirgrennslan var ákveðið að kalla fornleifafræðinga til sem komust að því að höndin og aðrir líkamspartar sem þeir fundu á svæðinu í kjölfarið tilheyrðu táningsstúlku sem var uppi um 650 árum fyrir Krist. Hún lést í mýri sem nú hefur verið þurrkuð upp. Slíkir mýrarfundir verða æ sjaldgæfari því færst hefur í aukana að stórvirkar vinnuvélar séu notaðar við mótekju. Dr. Henning Habmann, forstjóri þýsku fornleifastofnunarinnar, segir um stórfrétt að ræða í fornleifafræðiheiminum. Líkja megi henni við ísmanninn Ötze. Fornleifafræðingar telji að mýrarstúlkan geti einnig svarað mörgum spurningum um lífsskilyrði á járnöld, þ.e.a.s. í kringum 700 fyrir Krist. Mýrarstúlkan frá Uchter hefur nú fengið hvílustað á Þjóðminjasafninu í Hanover þar sem almenningi gefst kostur á að berja hana augum næstu vikur.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ Innlent Fleiri fréttir Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Sjá meira